top of page

Jón Rafn
Fasteignasali

Fasteignaráðgjöf sem byggir á reynslu 

Traust ráðgjöf fyrir seljendur sérbýla og verðmætra eigna. Vandað ferli, persónuleg nálgun og 20 ára reynsla. 

jónrafn.png

Jón Rafn

Fasteignasali, 6955520

Í yfir tvo áratugi hef ég í fullu starfi, aðstoðað fasteignaeigendur við að hámarka söluverð fasteigna sinna.  Að baki liggur reynsla af sölu á yfir þúsund eignum, þar sem nákvæmni í verðmati og markviss markaðssetning tryggja árangur sem byggist ekki á tilviljunum heldur þekkingu og vissu.

 

Sérþekking mín nær jafnframt út fyrir hefðbundna fasteignasölu.  Reynsla af störfum sem tilkvaddur matsmaður fyrir dómstólum, bæði á Íslandi og í Bretlandi, undirstrika vinnubrögð sem byggð eru á þekkingu sem stólað er á og sóst eftir, af þeim sem gefa engan afslátt af kröfum. Markmið mitt er ætíð að bjóða þjónustu þar sem fagmennska og trúverðugleiki mætast, ekki einungis til að ná sem bestri sölu heldur viðskiptavinum til öryggis og hagsbóta. 

 

Allt þetta gæti ég ekki staðið undir nema með Miklaborg sem bakhjarl.  Fasteignasala sem státar af gríðarlegri reynslu, hvort sem um er að ræða ráðgjöf eða metnaðarfullum frágangi skjala og ekki síst góðvild sem verður ekki til af engu.

Hafðu samband eða kynntu þér þjónustuna – ráðgjöfin er alltaf sniðin að þínum þörfum.
Jonrafn.jpg

Verðmæt fasteignaráð og innblástur

H.png

Vitnisburður og traust:

Jón Rafn seldi fyrir okkur raðhús árið 2024. Þjónustan var til fyrirmyndar og fagmennskan skein í gegnum allt ferlið. Eignin hafði verið á sölu í nokkurn tíma þegar Jón Rafn tók við og eftir það fóru hlutirnir að gerast. Ég get ekki annað en mælt með Jóni, fagmennska og heiðarleiki og umfram allt alveg frábær í samskiptum.

- Daði

Jón Rafn tók að sér að selja miðbæjaríbúð okkar. Hann lagði til söluverð sem var vissulega hátt miðað við markaðinn árið 2018 og viðurkennum við að okkur fannst verðlagningin nokkuð brött í fyrstu. Með mikilli elju, öflugri markaðssetningu og reglulegum sýningum seldi hann íbúðina á því verði sem hann lagði upp með.  Markmiðið náðist og við gætum ekki verið ánægðari

- Hannes og Rún

"Við vorum að leita að draumaheimili og Jón hjálpaði okkur að finna það á nokkrum vikum. Hann skildi þarfir okkar fullkomlega og gaf okkur tilfinningu um öryggi í allri þessari mikilvægu ákvörðun. Við gætum ekki verið ánægðari með þjónustuna hans!"

- Árni og Kristín

Við keyptum íbúð í nýbyggingu og þurftum að selja stærri eign okkar bæði hratt og örugglega. Okkur var mikið í mun að ná hámarksverði til að vera fyllilega sátt við skiptin. Það tókst fullkomlega og allt ferlið gekk smurt fyrir sig. Fyrir vikið gátum við flutt sátt og áhyggjulaus í nýju íbúðina okkar.  Jón Rafn reyndist okkur mjög vel.

– Sigríður og Guðmundur

Við fengum frábæra aðstoð frá Jóni við að selja einbýlishúsið okkar í Kópavogi. Ferlið var fagmannlegt frá upphafi til enda og við upplifðum mikið öryggi í öllum samskiptum. Við mælum heilshugar með Jóni Rafni við þá sem vilja selja eignina sína í öruggum höndum.

- Ingvar og Sólveig

HVG.jpg

Traust ferli byrjar á samtali. 

bottom of page