top of page

Jón Rafn
Fasteignasali

Ertu að leita að rétta kaupandanum eða þúsund forvitnum augum?

  • Mar 7
  • 2 min read

Fasteignamarkaðurinn er fjölbreyttur og mismunandi eignir krefjast mismunandi nálgunar. Þegar kemur að sölu á dýrari og sérhæfðari heimilum er ekki alltaf heppilegast eða nauðsynlegt að velja hefðbundnu leiðina í gegnum fasteignavefi og opin hús. Oft reynist markvissari og yfirvegaðri nálgun – það sem við köllum í daglegu tali „skúffuskráning“ – mun árangursríkari.


Reynsla mín hefur sýnt að þegar eign höfðar til afmarkaðs og þröngs hóps kaupenda skilar það yfirleitt bestum árangri að vinna beint með sterka kaupendaskrá og persónulegt tengslanet. Árangursríkasta leiðin felst í því að para saman eignina og rétta aðilann án umtals. Þetta sparar tíma, tryggir næði og skapar skilvirkara söluferli þar sem aðeins alvarlegir áhugasamir aðilar koma að borðinu.


Til að setja þetta í samhengi má nefna eignir sem eru í skúffunni hjá mér um þessar mundir. Þar á meðal eru einstök 200 fm þaksvala íbúð sem á sér fáa líka, glæsilegt, tæplega 400 fermetra einbýli sem býður upp á tvær aukaíbúðir og mikla möguleika og rúmlega 200 fm glæsilegt sumarhús í Grímsnesi. Allt eru þetta óneitanlega eignir sem myndu sóma sér vel á forsíðum fasteignavefja, fá mikla smelli og enda jafnvel í umfjöllun fjölmiðla.

Þau eru ýmis djásnin sem fara ekki endilega í hefðbundna sölumeðferð.  Oft reynist markvissari og yfirvegaðri nálgun – það sem við köllum í daglegu tali „skúffuskráning“ – mun árangursríkari.
Þau eru ýmis djásnin sem fara ekki endilega í hefðbundna sölumeðferð. Oft reynist markvissari og yfirvegaðri nálgun – það sem við köllum í daglegu tali „skúffuskráning“ – mun árangursríkari.

En fjöldi smella selur ekki endilega fasteignir. Þar sem markhópurinn fyrir þessar eignir er vel skilgreindur er einfaldlega engin þörf á opinni markaðssetningu. Ég vinn ferlið frekar faglega og fjarri almennu kastljósi.


Fyrir seljendur sem eiga sérstakar og verðmætar eignir er þessi leið áreiðanlegur valkostur til að ná hámarksárangri í friði og ró, þar sem fagmennska og friðhelgi er í hávegum höfð.


Hvort sem þú ert eigandi fasteignar sem þú myndir vilja hafa undir "radarnum" eða í leit að hinni fullkomnu eign fyrir sjálfan þig en finnur hvergi, þá skaltu ekki hika við að hafa samband og við tökum spjallið.


 
 
 

Comments


bottom of page