top of page

Jón Rafn
Fasteignasali

Er spænska loftslagið gott fyrir líkamann?

Sep 13
1 min read

Updated: 6 days ago

Eftir að ég flutti frá Íslandi til Spánar hef ég farið að velta meira fyrir mér hvort líkaminn kunni jafn vel að meta breytinguna og ég sjálfur. Frá kulda, vindi og raka á Íslandi yfir í sólina og hlýjuna á Costa Blanca.



Ég fór því að kynna mér hvort eitthvað væri til í því að loftslagið hér væri gott fyrir liðina.

Rannsóknir benda til þess að hlýtt loftslag geti hjá sumum dregið úr stirðleika og verkjum. Hér í nágrenninu er líka áhugavert náttúrufyrirbæri. Í sjálfum saltvötnunum í Torrevieja er hins vegar ekki leyfilegt að baða sig – þau eru verndað náttúrusvæði og starfandi saltsvæði.


En skammt frá, í Lo Pagán við San Pedro del Pinatar, eru sérstök leirböð við saltvötnin. Þar getur fólk farið í leirböð og síðan skolað sér í sjónum í Mar Menor. Svæðið hefur lengi verið þekkt fyrir þessa hefð og leirböðin eru meðal annars kynnt fyrir fólk með slitgigt og gigt.


Ég veit ekki hvort þetta sé „læknandi“ – og ég myndi ekki halda því fram. En þegar maður bætir saman hlýju, sól, útiveru, hreyfingu, sjó og þessari sérstöku náttúru er auðvelt að skilja hvers vegna mörgum líður vel hér.


Fjölmargir Íslendingar finna mikla breytingu á heilsu sinni hvort sem það er á sálina sjálfa, líkamann og jafnvel hvort tveggja.

 
 
 

Comments


bottom of page