Nokkur atriði sem gott er að hafa í huga
Updated: 4 days ago

Að kaupa fasteign á Spáni er spennandi ákvörðun, en ferlið er að mörgu leyti ólíkt því sem við þekkjum á Íslandi. Góður undirbúningur getur því skipt sköpum.
1. Horfið lengra en á fasteignina sjálfa: Staðsetningin hefur mikil áhrif á upplifunina og framtíðarverðmæti eignarinnar. Skoðið þjónustu, samgöngur, veðurfar og mannlíf á svæðinu – bæði yfir sumarið og að vetrarlagi.
2. Gerið raunhæfa kostnaðaráætlun: Kaupverðið er ekki allur kostnaðurinn. Taka þarf tillit til skatta, lögfræðikostnaðar, skráningar og annarra gjalda. Mikilvægt er að heildarmyndin liggi fyrir áður en ákvörðun er tekin.
3. Fáið óháðan lögfræðing: Lögfræðingur sem gætir eingöngu hagsmuna kaupandans yfirfer eignarhald, skuldir, leyfi og önnur gögn sem tengjast eigninni. Það veitir dýrmætt öryggi. Ég aðstoða kaupendur fasteigna á Spáni og tryggi að traustur lögfræðingur sé þeim innan handar.
4. Kaupið ekki eingöngu út frá fallegum myndum: Myndir geta gefið góða fyrstu sýn, en ekkert kemur í stað þess að skoða eignina og nærumhverfið með eigin augum. Hljóðvist, staða sólu og aðgengi sjást ekki alltaf í auglýsingunni.

5. Vinnið með fasteignasala sem þekkir ferlið: Reyndur fasteignasali hjálpar kaupandanum að spyrja réttu spurninganna, meta valkostina og halda utan um ferlið frá fyrstu skoðun til afhendingar.
Mitt hlutverk er að gera kaupin eins gagnsæ, örugg og ánægjuleg og mögulegt er. Orðspor mitt er mín dýrmætasta eign og því viðheld ég aðeins með áreiðanleika, vandvirkni og trausti og ekki síst á bak við mig nám til löggildingar fasteignasala á Spáni sem og að vera löggiltur fasteignasali á Íslandi með yfir tveggja áratuga reynslu.




Comments