Santa Rosalía – einstakur lífsstíll og spennandi fjárfesting

Santa Rosalía Lake & Life Resort er eitt áhugaverðasta nýbyggingarsvæði Murcia-héraðs. Það liggur vel staðsett á milli Torre Pacheco og strandbæjarins Los Alcázares, aðeins nokkra kílómetra frá Mar Menor. Hér er ekki eingöngu verið að byggja falleg heimili heldur heilt samfélag þar sem þægindi, útivist og spænskt sólarlíf fara saman.
Aðalframkvæmdaraðili og hugmyndasmiður Santa Rosalía er spænska fyrirtækið José Díaz García S.A., sem hefur meira en 60 ára reynslu af mannvirkjagerð og fasteignaþróun. Fyrirtækið annast heildarskipulag og sameiginlega innviði svæðisins, en fleiri verktakar koma að byggingu einstakra íbúðaráfanga. Framboðið er því fjölbreytt og samanstendur meðal annars af nútímalegum íbúðum, raðhúsum og einbýlishúsum.

Lónið sem gerir gæfumuninn
Hjarta Santa Rosalía er La Reserva, um 124.000 fermetra grænt útivistarsvæði. Þar er glæsilegt manngert lón með um 16.000 fermetra vatnsfleti, umlukið hvítum sandströndum, pálmatrjám og fallegum svæðum til sólbaða og samveru.
Lónið notar sérhæfða hreinsitækni frá Crystal Lagoons sem heldur vatninu tæru og hentar vel til sunds og vatnaíþrótta. Íbúar geta synt, siglt á kajak eða farið á standbretti nánast við útidyrnar. Á svæðinu eru einnig göngu- og hjólaleiðir, líkamsræktaraðstaða, minigolf, strandblak og leiksvæði fyrir börn.
Veitingastaðir, verslanir og dagleg þjónusta
Innan Santa Rosalía er veitingastaðurinn La Almazara, sem býður upp á matargerð undir miðjarðarhafsáhrifum. Þar er einnig lítil matvöruverslun og sérverslun fyrir gæludýr. Gert er ráð fyrir frekari uppbyggingu verslana, veitingastaða og annarrar þjónustu samhliða stækkun samfélagsins. Nánar um þjónustuna
Öll helsta daglega þjónusta er jafnframt í stuttri akstursfjarlægð. Í Los Alcázares og Torre Pacheco má finna stórmarkaði á borð við Mercadona, Lidl, Aldi og Consum, auk apóteka, banka, heilsugæslu, verslana og fjölbreyttra veitingastaða. Los Alcázares er sérstaklega þekktur fyrir líflega veitingamenningu, strandgönguna og notaleg torg þar sem hægt er að njóta tapasrétta og sjávarfangs.
Paradís fyrir golfara
Staðsetning Santa Rosalía hentar golfurum einstaklega vel. Mar Menor Golf Resort, með 18 holu velli sem tengist hönnun Jack Nicklaus, er nánast í næsta nágrenni. Roda Golf og La Serena Golf við Los Alcázares eru einnig í um 10–15 mínútna akstursfjarlægð. La Serena er sérstaklega eftirminnilegur fyrir vatnið sem kemur við sögu á flestum holum vallarins.
Fleiri þekktir golfvellir eru innan þægilegrar akstursfjarlægðar, meðal annars La Torre Golf, Terrazas de la Torre, Hacienda Riquelme, El Valle Golf og hin rómaða La Manga Club, þar sem finna má þrjá 18 holu golfvelli. Fjölbreytnin gerir mögulegt að spila ólíka velli allt árið um kring.

Hvers vegna að kaupa á Santa Rosalía?
Santa Rosalía sker sig greinilega úr hefðbundnum nýbyggingarsvæðum. Lónið, sandstrandirnar, öryggið og afþreyingin skapa lífsstíl sem höfðar bæði til fjölskyldna, golfara og alþjóðlegra kaupenda.
Eign á svæðinu getur hentað sem framtíðarheimili á Spáni, sumarhús eða fjárfestingareign. Samsetning nútímalegs húsnæðis, góðra innviða, nálægðar við golfvelli og einstakrar frístundaaðstöðu gerir Santa Rosalía að einum mest spennandi valkostinum á Costa Cálida.




Comments