top of page
Jón Rafn
Fasteignasali
Blogg



Nálgunin sem selur verðmætustu heimili landsins
Þegar kemur að því að selja sérbýli eða verðmæta fasteign á Íslandi, stendur þú frammi fyrir allt öðrum áskorunum en á almennum markaði. Þú þarft meira en bara hefðbundið ferli sem snýst um það að setja eignina á netið og krossa fingur. Þú þarft samstarfsaðila sem skilur fínustu blæbrigði markaðarins, þekkir raunvirði gæða og leiðir þig í gegnum hvert skref ferlisins af fyllstu alúð og fagmennsku. "Að selja dýrmætt heimili snýst ekki um að safna smellum á vefnum. Það krefst s


Ertu að leita að rétta kaupandanum eða þúsund forvitnum augum?
Fasteignamarkaðurinn er fjölbreyttur og mismunandi eignir krefjast mismunandi nálgunar. Þegar kemur að sölu á dýrari og sérhæfðari heimilum er ekki alltaf heppilegast eða nauðsynlegt að velja hefðbundnu leiðina í gegnum fasteignavefi og opin hús. Oft reynist markvissari og yfirvegaðri nálgun – það sem við köllum í daglegu tali „skúffuskráning“ – mun árangursríkari. Reynsla mín hefur sýnt að þegar eign höfðar til afmarkaðs og þröngs hóps kaupenda skilar það yfirleitt bestum á


Leyndarmálið á bak við hnökralausa – og ábatasama – sölu á verðmætum eignum
Að selja stærri og verðmætari fasteign á ekki að vera streituvaldandi ferli, heldur tækifæri til að hámarka þá fjárfestingu sem þú hefur byggt upp í gegnum árin. Sem eigandi slíkrar eignar veistu að smáatriðin skipta máli. En vissir þú að það hvernig lögfræðilegum undirbúningi er háttað áður en eignin fer á markað er oft sá þáttur sem ræður úrslitum um hæsta mögulega söluverð? Það sem kemur mörgum á óvart er að kaupendur dýrari eigna eru ekki bara að kaupa glæsilega hönnun eð


Ég ætla bara aðeins að dytta að því fyrst“ – Dýrkeyptasti misskilningur seljenda?
Hvers vegna þú gætir verið að kasta peningum á glæ með því að gera upp eignina rétt fyrir sölu. Eitt algengasta samtalið sem ég á við húseigendur á besta aldri hljómar svona: „Jón, við erum að hugsa um að selja. En við þurfum fyrst að skipta um innréttinguna í eldhúsinu, hún er orðin lúin. Og baðherbergið er frá 1998, það þarf að flísaleggja upp á nýtt. Bílskúrshurðin er skökk og skæld og það vantar hurðaopnara” Svarið mitt er oftast stutt og laggott: „Stopp. Ekki gera neitt


Þegar gamla góða fjölskylduheimilið verður að fjötrum – Tími fyrir nýjan kafla ?
Húsið sem eitt sinn iðaði af lífi, þar sem barnaherbergin voru full af leikföngum og eldhúsið miðpunktur fjölskyldulífsins, er skyndilega orðið hljótt. Börnin eru flogin úr hreiðrinu og eftir sitjið þið með fermetra sem þið notið ekki, garð sem krefst endalausrar vinnu og viðhald sem tekur bæði tíma og peninga frá því sem skiptir raunverulegu máli: Að njóta lífsins. Er skynsamlegt að eyða helgunum í að mála glugga, slá gras eða kynda upp herbergi sem enginn sefur í ? Eða væri


Þegar allir hafa skoðun, en þú berð ábyrgðina
Ég veit nákvæmlega hvar þú stendur. Þú situr heima í stofunni sem þú hefur byggt upp og hlúð að í áratugi. Kaffið er heitt, en tilfinningin í maganum er ólgandi. Af hverju? Vegna þess að allir í kringum þig – vinir, fjölskylda, vinnufélagar – hafa skoðun á því hvað þú átt að gera næst. „Talaðu við Palla, hann er frábær.“ „Frændi minn var að klára námið, gefðu honum séns.“ „Sigga seldi fyrir mömmu og það gekk fínt.“ Stöldrum við, þetta snýst um reynslu í samningatækni en ekki


30 milljóna króna „misskilningur“ – Skiptir val á fasteignasala máli ?
Það er mannlegt og eðlilegt að leita ráða hjá vinum og vandamönnum þegar kemur að stórum ákvörðunum. Oft verður fyrir valinu fasteignasali sem vinur eða samstarfsmaður bendir á eða sá sem er fljótastur að svara kallinu, sem er gott og vel. Fyrir hefðbundnar íbúðir getur það ferli gengið vel en vanda þarf valið og byggja það út frá reynslu viðkomandi fasteignasala, vitnisburð, tengslanet o.fl. Þegar um er að ræða sölu á stærri eignum eða sérbýli, þá snýst fasteignasala um mei


Hvað ræður verðlagningu á stærri heimilum ?
Þegar hefðbundin íbúð í fjölbýli er verðmetin er oftast hægt að styðjast við nýlega sölusögu í sama húsi eða hverfi. Þar gildir oftast ákveðin formúla. En þegar kemur að veglegu einbýlishúsi, sérhæð með útsýni, þakíbúðum eða öðrum sambærilegum eignum, þá vill formúlan bregðast. Ástæðan er einföld: Engar tvær slíkar eignir eru eins. Hvernig er stórkostlegt útsýni verðlagt? Hvers virði er vönduð garðhönnun, mikil lofthæð eða algjör friðsæld? Hver teiknaði húsið? Í þessum verð


Sérhæfing í sölu stærri eigna – Því hver eign er einstök
Að selja veglegt einbýlishús, stóra sérhæð eða stærri íbúð með þaksvölum er töluvert frábrugðið því að selja hefðbundna íbúð í fjölbýli. Þegar kemur að stærri eignum er ekki nóg að horfa bara á fermetrafjölda, því hér snýst salan um lífsstíl, gæði og sérstöðu. Reynslan hefur kennt mér að lítil sem stór atriði skipta miklu máli þegar kemur að því að hámarka söluverð í þessum flokki. Slíkar eignir kalla á öðruvísi nálgun við verðmat, markvissari markaðssetningu og síðast en ekk
bottom of page
