Ég ætla bara aðeins að dytta að því fyrst“ – Dýrkeyptasti misskilningur seljenda?
- Feb 22
- 2 min read
Hvers vegna þú gætir verið að kasta peningum á glæ með því að gera upp eignina rétt fyrir sölu.
Eitt algengasta samtalið sem ég á við húseigendur á besta aldri hljómar svona:
„Jón, við erum að hugsa um að selja. En við þurfum fyrst að skipta um innréttinguna í eldhúsinu, hún er orðin lúin. Og baðherbergið er frá 1998, það þarf að flísaleggja upp á nýtt. Bílskúrshurðin er skökk og skæld og það vantar hurðaopnara”
Svarið mitt er oftast stutt og laggott: „Stopp. Ekki gera neitt fyrr en ég er búin að skoða.“

Kynslóðin sem byggði upp sín heimili fyrir 20-40 árum ber mikla virðingu fyrir eignum sínum. Það er stolt fólgið í því að skila af sér húsi í toppstandi. En þegar kemur að sölu á sérbýlum og dýrari eignum í dag, þá er „nýtt eldhús“ ekki endilega það sem kaupandinn vill. Það er alltaf mistök að nútímavæða fyrir aðra.
Ef þú eyðir 4 milljónum í að setja upp nýtt, hvítt staðlað eldhús, þá ertu sennilega ekki að auka söluverðmætið um 4 milljónir. Þvert á móti. Kaupandinn að þínu húsi er líklega að leita að tækifæri til að setja sinn svip á eignina. Hann vill kannski svart eldhús, eða eyju, eða opna inn í stofu.
Ef þú ert búinn að „gera upp“ húsið eftir þínum smekk (eða því sem þú heldur að sé í tísku), gæti kaupandinn litið á það sem: „Jæja, nú þarf ég að borga fyrir nýtt eldhús sem ég ætla samt að rífa.“
Hvað borgar sig í raun og veru? Hlutverk mitt sem fasteignasala er að hámarka þinn hagnað, ekki að láta þig eyða sparifénu í framkvæmdir sem skila engu.
Galdurinn liggur í markvissri stílfærslu frekar en stórum framkvæmdum
Oft snýst þetta um mun ódýrari og einfaldari atriði:
Lýsing: Að skipta út gömlum ljósum og tryggja rétta birtu.
Létting: Að fjarlægja stór húsgögn til að sýna rýmið og lofthæðina. Jafnvel
Lagfæringar: Að laga það sem er bilað (t.d. lekur krani, slöpp buna úr blöndunartækjum, marr í hurð o.s.frv), en láta það sem er úrelt (en heilt) eiga sig.

Upprunalegur sjarmi selur Það er mikil eftirspurn eftir eignum með sál. Vel viðhaldið parket frá 1990 getur verið mun eftirsóknarverðara en ódýrt harðparket frá 2026. Kaupendur í dag kunna að meta „retro“ gæði og handverk.
Áður en þú hringir í iðnaðarmenn, hringdu í fasteignasala sem þorir að segja þér sannleikann um hvað borgar sig. Markmiðið er að þú gangir út með hæsta mögulega kaupverðið í vasanum – ekki að þú skiljir það eftir í nýjum flísum sem næsti eigandi mun brjóta niður.




Comments