Hvað ræður verðlagningu á stærri heimilum ?
- Jon Rafn Valdimarsson
- Jan 12
- 1 min read
Updated: Jan 20
Þegar hefðbundin íbúð í fjölbýli er verðmetin er oftast hægt að styðjast við nýlega sölusögu í sama húsi eða hverfi. Þar gildir oftast ákveðin formúla. En þegar kemur að veglegu einbýlishúsi, sérhæð með útsýni, þakíbúðum eða öðrum sambærilegum eignum, þá vill formúlan bregðast.

Ástæðan er einföld: Engar tvær slíkar eignir eru eins. Hvernig er stórkostlegt útsýni verðlagt? Hvers virði er vönduð garðhönnun, mikil lofthæð eða algjör friðsæld? Hver teiknaði húsið? Í þessum verðflokki er fólk sjaldnast aðeins að kaupa þak yfir höfuðið; það er að fjárfesta í upplifun, lífsstíl og framtíðarheimili. Oft á tíðum er um að ræða eign sem mun tilheyra fjölskyldunni í áratugi.
Hér reynir á faglegt innsæi og reynslu fasteignasalans. Það þarf að þekkja markhópinn og vita hvað hann er tilbúinn að greiða fyrir þessi „óáþreifanlegu“ gæði. Ef verðið er sett of hátt er hætta á að eignin „brenni inni“ og missi marks. Ef það er of lágt tapar seljandinn verðmætum.
Mín sérhæfing felst í því að greina þessa þætti rétt. Ég legg mikla vinnu í að skilja hvað gerir eignina þína einstaka og, það sem meira er, hvernig við komum þeirri sérstöðu til skila. Markmiðið er alltaf að finna þann punkt þar sem væntingar seljanda og draumar kaupanda mætast. Til þess þarf trúverðugleika, sannfæringu og þekkingu.
Ef þú ert að velta fyrir þér verðmæti þinnar eignar er þér velkomið að heyra í mér. Það kostar ekkert að fá faglegt mat og spjall um stöðuna. Með 20 ára reynslu og þann öfluga gagnabanka sem fylgir því að hafa Miklaborg sem bakhjarl, getur þú lagt traust þitt á okkur.



Comments