30 milljóna króna „misskilningur“ – Skiptir val á fasteignasala máli ?
- Jon Rafn Valdimarsson
- Jan 12
- 2 min read
Updated: 4 hours ago
Það er mannlegt og eðlilegt að leita ráða hjá vinum og vandamönnum þegar kemur að stórum ákvörðunum. Oft verður fyrir valinu fasteignasali sem vinur eða samstarfsmaður bendir á eða sá sem er fljótastur að svara kallinu, sem er gott og vel. Fyrir hefðbundnar íbúðir getur það ferli gengið vel en vanda þarf valið og byggja það út frá reynslu viðkomandi fasteignasala, vitnisburð, tengslanet o.fl.
Þegar um er að ræða sölu á stærri eignum eða sérbýli, þá snýst fasteignasala um meira en að opna dyr fyrir gesti og miðla upplýsingum. Hún snýst um djúpa greiningu og hæfileikann til að sjá verðmæti sem staðlaðir fermetraútreikningar ná ekki alltaf að sýna.
Sérstaða þinnar eignar krefst sérsniðinnar nálgunar

Mig langar að deila dæmi sem sýnir mikilvægi þessa. Fyrir nokkrum árum hitti ég húseiganda í Hlíðahverfinu. Hann var með verðmat upp á 180 milljónir króna í höndunum, byggt á fermetraverði í hverfinu, og var tilbúinn að setja eignina í sölu.
Mín sýn var önnur. Eignin bjó yfir gæðum og staðsetningu sem meðaltalstölur náðu ekki að fanga. Staðsetning eignarinnar í hverfinu var einstök og ýmsir möguleikar voru til staðar sem ég vissi að margir væru að leita eftir. Ég framkvæmdi ítarlega greiningu og samanburð við þarfir þess markhóps sem ég vissi að vantaði eign á svæðinu og var mín niðurstaða; 210 milljónir. Húsið seldist stuttu síðar á því verði.
Lærdómurinn er sá að 30 milljóna króna munur er ekki smáatriði. Það er upphæð sem breytir miklu fyrir seljandann. Þegar þú selur þína dýrmætustu eign skiptir máli:
Að fasteignasalinn þekki blæbrigði hverfisins umfram tölfræðina.
Að reynsla sé til staðar til að leiða flóknar samningaviðræður til lykta.
Að þorið sé til staðar til að verðleggja eignina eftir raunvirði hennar, en ekki bara eftir „öruggu“ meðaltali.
Reynslan selur. Ekki vegna þess að hún sé hávær, heldur vegna þess að hún er nákvæm. Ef þú vilt tryggja að verðmæti þinnar eignar séu metin að verðleikum, þá er þér velkomið að hafa samband.
Sérstaða þinnar eignar krefst sérsniðinnar nálgunar - Rétt verð í huga margra er ekki alltaf hámarksverð.



Comments