Sérhæfing í sölu stærri eigna – Því hver eign er einstök
- Jon Rafn Valdimarsson
- Jan 12
- 1 min read
Updated: Jan 22

Að selja veglegt einbýlishús, stóra sérhæð eða stærri íbúð með þaksvölum er töluvert frábrugðið því að selja hefðbundna íbúð í fjölbýli. Þegar kemur að stærri eignum er ekki nóg að horfa bara á fermetrafjölda, því hér snýst salan um lífsstíl, gæði og sérstöðu. Reynslan hefur kennt mér að lítil sem stór atriði skipta miklu máli þegar kemur að því að hámarka söluverð í þessum flokki.
Slíkar eignir kalla á öðruvísi nálgun við verðmat, markvissari markaðssetningu og síðast en ekki síst þekkingu á því hvernig nálgast á væntanlega kaupendur. Þessi hópur er þrengri og kröfuharðari, og þarf oft á tíðum ekki bara hvatningu, heldur fullvissu um að fasteignasalinn sé traustur bakhjarl sem fylgir þeim alla leið.
Að sjálfsögðu gilda sömu gæðakröfur um öll mín verkefni, óháð stærð. Ég tek fagnandi á móti fjölbreyttum eignum og legg metnað í vönduð vinnubrögð fyrir alla mína viðskiptavini. Hins vegar vil ég bjóða eigendum stærri eigna þá sérhæfðu þjónustu sem þarf til að ná hámarksárangri. Ef þú býrð í eign sem krefst sérstakrar athygli og faglegra vinnubragða, hvet ég þig til að hafa samband og ræða málin.



Comments