top of page

Jón Rafn
Fasteignasali

30 daga fyrirvarinn – Gildra, val eða gáleysi

  • May 5
  • 2 min read

Updated: May 6

Í áratuga starfi mínu í fasteignageiranum hef ég tekið eftir því hvernig ákveðið orðalag í kauptilboðum getur valdið alvarlegum misskilningi ef það er ekki nægilega vel skýrt fyrir báðum aðilum þ.e kaupanda sem og tilboðsgjafa


Eitt skýrasta dæmið snýr að 30 daga fyrirvara um að kaupandi nái að selja sína eigin eign. Í stöðluðum texta stendur yfirleitt að að þeim tíma liðnum hafi seljandi „heimild til að falla frá kauptilboðinu“.


Hér geta orðið dýrkeypt mistök. Sumir seljendur halda að á 31. degi sé tilboðið einfaldlega úr gildi fallið og þeir lausir allra mála og geti þ.a.l fundið sér annan kaupanda. Þetta er varasamur misskilningur. Þessi „heimild“ er einungis valréttur en ekki sjálfkrafa riftun. Samkvæmt lögum um fasteignakaup er meginreglan sú að samningurinn lifir í tvo mánuði áður en hann fellur sjálfkrafa niður.


Ef seljandi aðhefst ekkert á 31. degi og samþykkir í kjölfarið nýtt tilboð frá öðrum aðila, gæti fyrri kaupandinn skyndilega aflétt sínum fyrirvara. Þá getur seljandi setið uppi með tvo gilda sölusamninga um sömu fasteign. Það er staða sem enginn vill lenda í.



Hvað á að gera?

Um leið og þessir 30 dagar eru liðnir verður að senda formlega og sannanlega riftunaryfirlýsingu á tilboðsgjafa til að fella fyrra tilboðið niður. Þetta er eitt af mörgum atriðum þar sem reynsla skiptir sköpum. Tilboðsgjafi sem lagði fram tilboð með fyrirvara um að sín eign seldist innan ákveðins tíma verður að gera upp við sjálfan sig að þeim tíma liðnum, hvort hann hyggist standa við tilboð sitt eður ey. Annars getur hann átt það á hætt að tilboðinu verði rift af seljanda sem hefur t.d. fundið sér kaupanda sem tryggði sér eignina án fyrirvara.


Faglegur og reyndur fasteignasali hefur augu á dagatalinu, þekkir lögin og sér til þess að öllum dyrum sé formlega lokað áður en farið er í næstu skref. Í fasteignaviðskiptum á ekkert að vera skilið eftir í lausu lofti hvorki val á reynslu, þekkingu eða lögformlegum atriðum sem verða að vera 100% á hreinu.


Ertu í fasteignahugleiðingum og vilt tryggja að hagsmunum þínum sé gætt út í ystu æsar og engin mistök gerð? Heyrðu í mér og við göngum tryggilega frá málunum.

 
 
 

Comments


bottom of page