top of page

Jón Rafn
Fasteignasali

Nettó eða brúttó

  • May 10
  • 1 min read

Það er algengt að fasteignaeigendur eða þá tilvonandi kaupandi fasteignar reki upp stór augu þegar þeir bera saman gamlar teikningar af heimilinu og opinbera skráningu hjá fasteignaskrá Húsnæðis- og mannvirkjastofnunnar. Oft munar talsverðu á fermetratölunni og margir draga þá ályktun að opinbera skráningin sé hreinlega röng. Sannleikurinn er hins vegar sá að þetta er sjaldnast villa, heldur spurning um mismunandi reikniaðferðir.


Á eldri teikningum er algengt að notast sé við svokallaða nettóstærð. Það er gólfflöturinn inni í hverju herbergi – það rými sem þú getur raunverulega nýtt undir húsgögn og gengið um. Hins vegar miðast opinber skráning í fasteignaskrá við brúttóstærð, í samræmi við íslenska staðla (ÍST 50). Þar er flatarmál ytri veggja tekið með í reikninginn.


Þessi munur getur valdið óþarfa ruglingi og jafnvel tortryggni við sölu eða kaup á eign. Það er mikilvægt að átta sig á því að þótt talan í fasteignaskrá sé hærri, þá hefur íbúðin sjálf ekkert stækkað; aðferðin við að mæla hana er einfaldlega önnur í dag en hún var áður fyrr.



Fasteignaviðskipti snúast um staðreyndir, ekki ágiskanir. Ef þú vilt fá fleiri beinskeytt ráð um fasteignamarkaðinn og hvernig best er að bera sig að, þá hvet ég þig til að fylgja mér á Instagram og Facebook. Þar fer ég reglulega yfir atriði sem gott er að hafa á hreinu svo þú vaðir ekki í villu og svíma.


Fylgdu mér hér:

 
 
 

Comments


bottom of page